Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2010

Maður verður agndofa !!!!

Jæja þá er skýrslan kominn út með látum...þetta er alveg ótrúlegt hvernig menn og stjórnendur í bönkunum haf hagað sér....ég hlustaði á Ísland í bítið á Bylgjunni í morgun ....þar kom meðal annars fram í þeim þætti Vilhjálmur Bjarnason og Jónína Ben.

Í gegnum tíðina hefur fólk talað um Jónínu sem móðusjúka kerlingu sem hafi verið hafnað af ákveðnum manni....en viti menn þetta var allt saman rétt sem þessi kona hafði fram að færa...og ráðamenn hundsuðu hana '' Stórkostlegt vitneskja um valdhroka ''

Í gegnum tíðina hefur verið talað um Bónus sem kjarabót til fólksins í landinu...það má vel vera...en þessir höfðingjar komu með lægra vöruverð til neytanda....en meðtímanum þá hafa þessir menn náð þessu öllu til baka og halda landanum í heljargreipum.

Ég skora á fólk að taka til hendinni og hætta að versla í Bónus...borgum í sömu mynt...þetta fólk hefur komið okkur á kaldan klaka með þessum ótrúlegum gjörningum.

Styðjum heilbrigða verslunarhætti og verslum hjá kaupmanninum á horninu eða bara í Fjarðarkaupum ...þar ræður ríkjum heilbrigð skynsemi

Fyrir þetta sem á undan er gengið hafa menn verið verlaunaðir í bak og fyrir...svei og aftur svei.

Við sem búum á þessum klaka krefjumst réttlætis og að þessir menn ásamt þeim sem hafa stjórnað landinu verði dregnir fyrir dóm og látnir svara til saka hvað þetta varðar.

Ég vil hvetja menn og konur til að þjappa sér saman og krefjast réttlætis...upp með potta og pönnur ef það er það sem þarf .....ráðmenn virðast ekki skilja gang mála fyrr en að þeir telji sér ógnað. Burt með þessa blessuðu ríkistjórn og það strax.

Á þingi er samansafn af fólki sem aldrei hefur þurft að velta fyrir sér hverri krónu þegar launaumslagið kemur..hvað get ég borgað og hvað ekki.

Ég hjó eftir því þegar  Steingrímur J var í þætti Jóns Ársæls Sjálfstætt fólk Jón spurði Steingrím hvort hann skuldaði ....og hinn spurði ...bílalán eða íbúðarlán og Jón sagði já...Steingrímur sagðist vera blessunarlega laus við það ...hann skuldaði ekkert.....hvernig getur svona maður komið fram fyrir alþjóð og sagt ég skil mæta vel hvað fólk er að ganga í gegnum ....ha bíddu...hvernig getur hann það?

Hættum að versla í Bónus og komum þessari stjórn frá ...því að allir þingmenn eru sekir um vanrækslu í starfi hvort sem að fólk hefur verið í stjórn eða stjórnaandstöðu  ......það hafa allir skyldum að gegna á þingi.....en því miður þá hafa þingmenn margir hverjir verið áskrifendur af  launum fyrir þingstörf....og þetta er sorglegt

Lifið heil


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband