Maður verður agndofa !!!!

Jæja þá er skýrslan kominn út með látum...þetta er alveg ótrúlegt hvernig menn og stjórnendur í bönkunum haf hagað sér....ég hlustaði á Ísland í bítið á Bylgjunni í morgun ....þar kom meðal annars fram í þeim þætti Vilhjálmur Bjarnason og Jónína Ben.

Í gegnum tíðina hefur fólk talað um Jónínu sem móðusjúka kerlingu sem hafi verið hafnað af ákveðnum manni....en viti menn þetta var allt saman rétt sem þessi kona hafði fram að færa...og ráðamenn hundsuðu hana '' Stórkostlegt vitneskja um valdhroka ''

Í gegnum tíðina hefur verið talað um Bónus sem kjarabót til fólksins í landinu...það má vel vera...en þessir höfðingjar komu með lægra vöruverð til neytanda....en meðtímanum þá hafa þessir menn náð þessu öllu til baka og halda landanum í heljargreipum.

Ég skora á fólk að taka til hendinni og hætta að versla í Bónus...borgum í sömu mynt...þetta fólk hefur komið okkur á kaldan klaka með þessum ótrúlegum gjörningum.

Styðjum heilbrigða verslunarhætti og verslum hjá kaupmanninum á horninu eða bara í Fjarðarkaupum ...þar ræður ríkjum heilbrigð skynsemi

Fyrir þetta sem á undan er gengið hafa menn verið verlaunaðir í bak og fyrir...svei og aftur svei.

Við sem búum á þessum klaka krefjumst réttlætis og að þessir menn ásamt þeim sem hafa stjórnað landinu verði dregnir fyrir dóm og látnir svara til saka hvað þetta varðar.

Ég vil hvetja menn og konur til að þjappa sér saman og krefjast réttlætis...upp með potta og pönnur ef það er það sem þarf .....ráðmenn virðast ekki skilja gang mála fyrr en að þeir telji sér ógnað. Burt með þessa blessuðu ríkistjórn og það strax.

Á þingi er samansafn af fólki sem aldrei hefur þurft að velta fyrir sér hverri krónu þegar launaumslagið kemur..hvað get ég borgað og hvað ekki.

Ég hjó eftir því þegar  Steingrímur J var í þætti Jóns Ársæls Sjálfstætt fólk Jón spurði Steingrím hvort hann skuldaði ....og hinn spurði ...bílalán eða íbúðarlán og Jón sagði já...Steingrímur sagðist vera blessunarlega laus við það ...hann skuldaði ekkert.....hvernig getur svona maður komið fram fyrir alþjóð og sagt ég skil mæta vel hvað fólk er að ganga í gegnum ....ha bíddu...hvernig getur hann það?

Hættum að versla í Bónus og komum þessari stjórn frá ...því að allir þingmenn eru sekir um vanrækslu í starfi hvort sem að fólk hefur verið í stjórn eða stjórnaandstöðu  ......það hafa allir skyldum að gegna á þingi.....en því miður þá hafa þingmenn margir hverjir verið áskrifendur af  launum fyrir þingstörf....og þetta er sorglegt

Lifið heil


Eva Joly lítur á alla bankamenn og útrásarvíkinga sem glæpamenn??????

Jæja Sigurður G Guðjónsson...ég bara spyr   "HVAÐ ERU þEIR ANNAÐ" ????

Þetta er alveg með ólíkindum hvað þessi  þjóð er spillt af fámennum hóp manna sem enn hafa áhrif í samfélaginu. Stór hópur sem vann í bankageiranum er mjög spilltur....við erum að fá fregnir af sjálftöku á peningum hjá þessum aðilum uppá tugi milljóna króna ég held að þú og þínir líkir sem hafa verið á mjög gráu svæði í langan tíma ættuð að láta vera að vera að tjá ykkur um þessi mál. Þið gerið í því að þvæla málum fram og til baka til að hindra að réttlætið nái fram að ganga.

Ef allt væri með felldu þá þarf ekki neina rannsókn er það?.... það er eitthvað  bogið við þetta allt saman...greinilega


Hugleiðingar um handboltan í vetur

Jæja þá er handboltavertíðin búin þetta vorið og nú liggur fyrir hverjir eru bestir af áliti þeirra sem velja. Ég get ekki annað en sett út á ýmsa sem hafa verið valdir og verlaunaðir fyrir eftir veturinn.

Þann fyrsta sem ég set spurningarmerki við er Díana Guðjónsdóttir þjálfari Hauka....ég einfaldlega spyr hvað unnu Hauka stelpur í vetur????? ekki neitt hver man eftir deildameistaratitli þegar fram líða stundir ....þetta er ótrúlegt val á besta þjálfara landsins í kvennaboltanum...svo er það hornamaðurinn Hanna G ég hefði valið hana sem besta spretthlaupara já eða fremsta senter þetta er bara grín.

Stjarnan er og verður alltaf best í kvennaboltanum og það er miður að leikmenn Stjórnunar skuli ekki hljóta náð fyrir vali þegar er verið að velja bestu leikmenn og eða þjálfara umferðanna heilt yfir. Stjarnan var með í vetur bestu leikmenn nánast í öllum stöðum og besta bekkinn það er alveg klárt svo og þjálfarann hann Atla.

Karla meginn er þetta mjög svipað Aron Pálma ...hann lék ekki mikið eftir áramót og þá leiki sem hann lék var hann slakur...menn halda ekki vatni yfir þessum leikmönnum Aroni og Rúnari Kára en hefur einhver spáð í það hver skotnýtingin er hjá þessum leikmönnum...hún er arfaslök.

Ég get alveg unnt Aroni að vera valinn besti þjálfarinn.....en að mínu mati finnst mér Viggó hafi átt að fá þennan titil......að hafa ná þessu með þennan mannskap allan meira og minna í meiðslum í vetur finnst mér frábært

Það er ekki á vísan að róa þegar kemur að lokauppgjöri í þessu sporti það er nokkuð ljóst. Nú verður nýtt mót í september og allir á O.

Aðeins að dómarapakkanum þetta er nú búið að vera upp og niður hjá þeim og þó aðallega niður hjá mörgum sem voru að dæma í efstu deild...ég hlýt að spyrja mig eftir að hafa horft á marga leiki í vetur karla og kvenna meginn hvað þarf dómari að uppfylla til að fá að dæma í efstu deild ??? það þarf ekki annað en að horfa á hollinguna á mörgum...líkamlegt atgerði og ásigkomulag mjög slæmt...sumir nánast blindir og eða ekki á sama leik og við hin...þetta ástand er slæmt í alla staði...og ef menn koma fram og tjá sig .....þá skulu alltaf vera sömu viðbrögð frá HSÍ eða formanni dómaranefndarinnar ...."það er verið að grafa undan hreyfingunni" já sæll...hver gefur mönnum það alræðisvald að tjá sig á þennan hátt um aðra....eigum við bara að halda kj.... og kyngja því að þeir svartklæddu skuli hafa það í hendi sér hvar úrslit leikja lenda....að það skuli ekki ráðast á getu liða í þeirri viðureign eða hvort liðið var betra....skandall

Lifið heil...

Handboltaáhugamaður


Alltaf í Boltanum??????

Þetta er nú meiri hörmungin sem ég varð vitni að í gærkveldi....landsleikur í fótbolta. Þetta var röng uppstilling á liðinu...hvað er Eiður að gera þarna frammi???? hann spilar miðju tengilið hjá sínu liði ...og hefur gert það ágætlega...enda sást það þegar hann fór á miðjuna (náði í boltann) þá skapaðist hætta.

 Hvernig má það vera að við hittum ekki boltann trekk í trekk (hörmung). Við þurfum að endurskoða hlutverk miðjumanna ...það eru menn sem bera uppi leikinn, geta haldið bolta og sent bolta á samherja....þetta var allt svo tilviljunar kennt í gær og hending að við náðum 3....4 sendingum á samherja. Það sem einkennir góðan miðjumann er tækni, útsjónarsemi, barátta og sköpunar gáfa, Þessu var ekki fyrir að fara hjá okkar mönnum á miðjunni...klaufaleg brot, lélegar sendingar og alltof margar rangar ákvarðanir.

Í mörkunum sem við fengum á okkur...þá voru rúmlega helmingur af okkar mönnum í kringum boltann, og allir stóðu og horfðu á og biðu eftir að einhver gerði eitthvað (hörmung) Og svo tala menn með þeim hætti að við áttum að vinna...við áttum ekkert skilið út úr þessum leik...þegar menn nenna ekki að leggja á sig það sem til þarf að vinna þá eigum við ekkert skilið.

Fyrir næsta leik þá held ég að þjálfara teymið verði að endurskoða val sitt á liðinu...og fá leikmenn sem nenna þessu og eru tilbúnir að berjast af krafti allan leikinn ...ekki bara síðustu 10 mín og ég vona svo innilega að það verði valdir menn sem eru að spila með sínum liðun...eða með varaliðinu...ekki eins og Emil Hallfreðsson...hann hefur spilað nákvæmlega 30 mín með sínu liði í marga mánuði...enda höfum séð séð það sem hafa áhuga á þessu að hann er ekki í neinni leikæfingu og hefur ekki verið lengi.

Kalt mat er það að við eigum 3 til 4 leikmenn sem teljast vera þokkalegir og eru að spila með sínum liðun....aðrir eru fyrir neðan meðallag, Skotarnir eru ekki með neitt sérstakt lið, en þeir vildu þetta meira greinilega...og + það að þeir hafa hefðina á að fara á stó mót og vita hvað þarf til til að klára leiki eins og þennan.

Sem betur fer eigum við handboltalandslið í fremstu röð og kvenna lið í fótbolta sem er mjög framalega...þær eru komnar á stór mót og hafa það fram yfir karlaliðið ...þannig að þetta er ekki alveg svart hjá okkur

Áfram Ísland


Sóun á hæfileikum!!!!!

Eftir að hafa horft á Spaugstofuna....verð ég að segja það að þetta er sóun á hæfileikum þessa annars ágæta fólki sem er ríkistjórn og þingmenn almennt og ég tala nú ekki um seðlabankastjórann okkar ástkæra.

Davíð hann var frábær í útvarpi Matthildar á sínum tíma, en síðan hefur þetta bara verið niður á við því miður!!!!!!hann hefði átt að halda sig við útvarpið hann hefði getað orðið Jay Leno.

Össur ja hvað getur maður sagt...hann veit allt um fiska..?? eða það held ég.

Jóhanna þessi elska hefur ábyggilega verið mjög góð flugfreyja...en fór í pólitík og hún sagði "minn tími mun koma" ????? og við bíðum enn! spurning hvort hann komi héðan í frá.

Árni dýralæknirinn úr Hafnarfiðri sem sér um peninganna...jú hann er úr Hafnarfirði er það ekki nóg?

Möller frá Siglufirði sem hagnaðist á sölu verðlaunagripa hann sér um þjóðvegi þessa lands...þá aðalega um veginn til og frá Reykjavík/Siglufjörður svo er hann liðtækur í sportinu....eða VAR það !!! .

Björgvin sem sér um öll viðskiptin okkarrrrrrrrr heimspeki menntun og er viðskiptaráðherra !!!!!já sæll. Hann ætti að vera í forsvari fyrir málfundafélagi...hann talar svo skýrt og greinilega.

Björn Bjarnason. Maðurinn sem ætlar að innleiða Back to the vild west skera niður alla löggæslu og að menn taki lögin í sínar hendur. Hann hefur farið víða....... verið settur í borgarstjórna flokk sjálfstæðisflokksins...ekki gekk það fór aftur inn á þing og situr nú sem aðal Sherrif og boðar betri tíð.

Umhverfisráðherra virðist vera stykk frí í öllu þessu...hún er væntanlega að íhuga næsta álver.

Ég get ekki sleppt fjármálaspekúlantinum Pétri Blöndal, örugglega vel gefin maður, en mér hefur gengið illa að skilja hann..... hann haltrar svo mikið þegar hann talar....spurning um að gera það sama og þegar Gísli heitinn á Uppsölum var í sjónvarpinu....texta manninn

Geir og Ingibjörg forustusauðir þessa litríka hóps eru ekki í  við raunveruleikann, þegar allt virðist vera að fara fjandans til...þá er verið að sóa peningum í eitthvað sem heitir öryggisráð sameiniðuþjóðanna "kosningabaráttu" til hvers og hvað hefði það gert fyrir okkur  ef við hefðum náð kjöri ??? ég spyr bara, ég held að fæstir landsmenn viti ekki hvað þýðingu og eða hvaða tilgangi þetta þjónaði.

Ég held að við ættum að koma okkur inn í raunveruleikann aftur og ég skora á ráðamenn þjóðarinnar þ.e ráðherrar og þingheimur að ganga fram fyrir skjöldu og sýna fordæmi og taka á sig launaskerðingu...það eitt og sér er gott fordæmi

Til þess að létta þetta aðeins þá legg ég til að Spaugstofan, Dagvaktin og Marteinn Mosdal taki við stjórnartaumum.


Landið lamað?????

Þetta er nú meiri krísan sem landinn er í......hvar er ábyrgðin??? og allir segja ekki benda á mig.

Hvernig má það vera í landi sem seðlabankastjóri er rithöfundur og grínisti og fjármálaráðherra dýralæknir að svona hlutir geti gerst, ég hélt að í öllum ævintýrum björguðu aðalpersónurnar málum í lokin....en það á ekki við hérna á Íslandinu góða......það er hel! Bretinn sem setti okkur á hausinn, en ekki við sjálf. Af hverju koma menn ekki fram og tala við þjóðina...þessir útrásar víkingar, hvað eru menn hræddir við ef þetta er allt Breska heimsveldinu að kenna?. Ég horfði á Silfur Egils á sunnudaginn...og því lík vanvirðing við viðmælanda sinn Jón Ásgeir...ég var engu nær af hafa horft á þáttinn...því að Jón Ásgeir komst ekki að.

Þetta er skondið ...þar sem ég var sjómaður vel á 3 tuga ára og hef lifað tímanna tvenna í þeim efnum að hlusta á ráðamenn þjóðarinnar tala með þeim hætti eins og þeir gera núna varðandi aðalatvinnugrein landsins "fiskveiðar"það er alveg á hreinu að fiskveiðar hafa og munu verða aðalútflutnings grein okkar ekki einhver BANKI eða eitthvað hugvit sem tengist Mattador spili

Ég bið landsmenn að muna öll þau orð sem fallið hafa á síðustu máuðum þegar kemur að næstu kosningum...þ.e.a.s ef við fáum að kjósa

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband